ECTOS

100_0751Evrópusambandsverkefnið ECTOS (Ecological City TranspOrt System) er tilraunaakstur með vistvænar borgarsamgöngur. Íslenskri NýOrku var veittur rausnarlegur styrkur (700 milljónir króna)  til að prófa vetnisvagna í almennri umferð í Reykjavik og fyrsta vetnisstöðin var reist til að vinna vetni úr vatni fyrir vagnana. Gagnasöfnun fór fram í vögnunum, á stöðinni og í þjóðfélaginu almennt á meðan tilrauninni stóð. Nú er hægt að nálgast allar skýrslur verkefnisins hér ! Þær eru á ensku, enda um alþjóðlegt verkefni að ræða. Verkefninu lauk í ágúst 2005 og tókst framúrskarandi vel. Fyrirtækið, starfmenn í samstarfsfyrirtækjunum og erlendir samstarfsaðilar lærðu mikið um búnaðinn og hvað má lagfæra til að reka vetniskerfi i samgöngum. Enn verður haldið áfram að keyra vagnana til ársloka 2006 innan annars verkefnisramma sem nefnist Hy-FLEET:CUTE og er einnig evrópusamstarfsverkefni.

ECTOS-verkefninu lauk árið 2005 og er allt efni því tengt komið út. Sökum þess að um sam-evrópskt verkefni var að ræða er allt efnið á ensku. Þó var gefinn út stuttur kynningarbæklingur um verkefnið á íslensku, og má nálgast hann hér.

Fréttabréfin voru gefin út með reglulegu millibili meðan á verkefninu stóð.

ECTOS fréttabréf 1 
ECTOS fréttabréf 2 
ECTOS fréttabréf 3 
ECTOS fréttabréf 4

Fréttabréf Íslenskrar NýOrku 2007

Skýrslur:

Allar skýrslur ECTOS verkefnisins eru komnar út. Sú skýrsla sem er eiginlega útdráttur úr flestum hinna er númer 17, en hver skýrsla um sig fjallar um tiltekinn þátt verkefnanna. í stað skýrslu no 14 um nýtni vagananna bjóðum við lesendum ítarlegri skýrslu sem fer nákvæmlega í það hvernig vagnarnir notuðu orkuna sem fólgin er í vetninu. Þetta er grein sem birtist í International Journal of Hydrogen Energy.

Efni skýrslanna er sem hér segir: