Fyrirlestrar

Íslensk NýOrka hefur boðið gestum fyrirlestra um vetni, nýtæknibíla, samgöngustefnu fyrirtækja og helstu rannsóknarverkefni fyrirtækisins. Fyrirlestrunum fylgja umræðustundir þar sem fyrirspurnum er svarað og reynt er að svala forvitni gesta. Hópar sérfræðinga jafnt og framhaldsskólanema, kennara og eldri borgara hafa hlýtt á kynningar okkar. Jafnframt hefur verið tekið á móti skólahópum til að sýna vetnistæknina og ræða við starfsfólk á viðhaldsverkstæðum. Strætisvögnunum var lagt árið 2007 en í umferð eru vetnisbílar og frá árinu 2010 hefur fyrirtækið haft tvo rafgeymnabíla til reynsluaksturs. Þeir eru því allir í umferð og ekki til sýnis hjá okkur. Að jafnaði eru fleiri erlendir gestir en Íslendingar sem leita eftir kynningu á verkefnum NýOrku. Við tökum á móti erlendum hópum af orkusérfræðingum jafnt og stúdentum eða framhaldsskólahópum sem greiða fyrir þjónustuna. Fyrirlestrar eru dagsettir með góðum fyrirvara og eru að jafnaði haldnir í Orkugarði (Grensásvegi 9) þar sem fulltrúar NýOrku sýna með fjölskrúðugum myndum efni frá liðnum árum og tengjast tilraunum með rafknúin farartæki og rafdreifikerfið. Fallað er um vetnisvagnaverkefnið, rannsóknarniðurstöður, almennar viðtökur og reynslu af því að nota rafmagn í samgöngum. 

Sendið póst til amk[at]newenergy.is til að panta fyrirlestur og fá frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar um fyrirlestra og námskeið er að finna á ensku útgáfu síðunnar.