21.03.2016 | 10:21 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Í sumar verður hægt að keyra alla leið frá Skagen til Kaupmannahafnar á vetni - rúmlega 400 km - og verður Danmörk þar með fyrsta ríki heims, þar sem þetta verður hægt. Net 12 vetnisstöðva, sem verður tilbúið í vor, gerir Dönum þetta kleift. Vetnisvæðing landsins er lykilþáttur í stefnu Dana að verða óháðir notkun jarðefnaeldsneytis fyrir árið 2050. Þó svo vetnið sé í dag innflutt frá Þýskalandi mun það breytast á næsta ári með tilkomu vetnisstöðvar í Hobro sem mun nota vindorku til að framleiða vetni með rafgreiningu. Sjá nánar um vetnisvæðingu Dana í frétt á mbl.is....
10.03.2016 | 11:33 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
H2 Logic í Danmörku opnaði í liðinni viku níundu vetnisstöð landsins. Stöðin er jafnframt sú þriðja sem vígð er á síðastliðnu hálfu ári í Danmörku og mun hún þjónusta Hyundai vetnsbíla á austanverðu Jótlandi. Vetnið er framleitt af Strandmøllen og með tækni frá NEL-Hydrogen, systurfyrirtæki H2 Logic. Vetnisstöðin í Kolding er hluti af H2ME verkefnin...
07.03.2016 | 13:18 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Næsta kynslóð rafbíla verður í formi vetnisbíla, samkvæmt framkvæmdastjóra Uno-X group, Vegar Kulset. Fyrirtækið stefnir að því að opna 20 vetnisstöðvar fyrir árið 2020 í Osló, Bergen, Trondheim, Stavangri og Kristiansand og meðfram þjóðvegum á milli þessara borga. Kulset kallar eftir því að stjórnvöld fjalli um vetnisstöðvar í Samgönguáætlun sinni ...
04.02.2016 | 08:46 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Frasælt samstarf Honda og GM heldur áfram. Bílaframleiðendurnir tveir hyggjast reisa sameiginlega efnarafalaverksmiðju fyrir árið 2025 en þeir munu áfram framleiða sjálfir bíla sína þó þeir noti sömu rafala. Honda stefnir að því að koma Honda Clarity vetnisbíl á markað árið 2017 á meðan enn er óljóst hvenær GM kemur til með að snúa aftur í vetnisbra...
06.01.2016 | 10:10 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Hyundai ætlar sér að framleiða nýjan Tucson vetnisbíl fyrir 2020, sem er meira en einungis breytt útgáfa af bensínbifreið. Nýja útgáfan mun ná 800 km drægi, sem er umtalsvert umfram það sem núverandi keppninaugar bjóða, en Toyota Mirai hefur 500 km drægi og Honda Clarity Fuel Cell, sem kemur á markað árið 2017, hefur 700 km drægi. Sjá nánar í grein...
11.12.2015 | 09:12 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Kóreski bílaframleiðandinn Kia telur vetni vera orkubera framtíðar og áformar að selja vetnisbíla sína á almennum markaði frá árinu 2020. Þangað til mun Kia framleiða 1000 slíka bíla á ári til prófana og auka smíði rafbíla og þannig smám saman draga úr framleiðslu bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Sjá nánar í frétt mbl.isHybrid Cars og ...
07.12.2015 | 09:19 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Í dag eru það einungis Honda og Toyota sem bjóða upp á vetnisbíla en líklegt er að það breytist á næstu árum. Í tímaritinu Autocar kemur fram að Benz framleiðandinn muni kynna vetnisútgáfu af smájeppanum GLC á bílasýningunni í Frankfurt hausti 2017 og bíllinn verði kominn á götuna 2018. Sjá nánar á mbl.is og Autocar....
17.11.2015 | 14:30 | Flokkur: Hydrogen/Vetni
Honda frumsýndi nú fyrir stuttu á bílasýningu í Tokyo nýjan bíl, Clarity Fuel Cell, sem kemur á markað í Japan árið 2016. Líklegt er talið að bíllinn komi til Evrópu á síðari hluta sama árs. Drægi bílsins er um 700 km og einungis tekur 3 mínútur að fylla tankinn. Sjá nánar í frétt mbl og á síðu Honda....
03.11.2015 | 08:47 | Flokkur: Rafmagn/Electricity
Íbúar skosku Hebrides eyjanna eru vanir roki og hafa nú tekið sig til og beislað það. Pentland Road wind farm hefur sett upp sex vindmyllur sem framleiða rafmagn á Renault rafbíla. Rafbílana, sem eru af tegundinn Zoe og Kangoo, má svo leigja í lengri eða styttri ferðir um eyjarnar. Verkefnið hefur það að markmiði að útvega gestum og íbúum eyjanna en...
« Previous page Next page »